Menning
Sigurborg í Hólum
Sigurborg í Hólum
Sigurborg í Hólum - verk eftir Jón Þorleifsson
Mynd 4 af 5
1 2 3 4 5

17.09.2010

Gjafir til Sveitafélagsins Hornafjarðar

Málverk eftir Jón Þorleifsson og Bjarna Guðmundsson

Nú í haust bárust Sveitafélaginu Hornafirði veigamiklar gjafir en þær eru málverk eftir Jón Þorleifsson og Bjarna Guðmundsson sem eru báðir Hornfirskir myndlistamenn og hafa málað landslagsmyndir úr sýslunni ásamt öðru.

Málverkin eftir Jón Þorleifsson eru tvö talsins og eru olíumálverk. Þau voru gjafir frá bróðursyni Jóns, Gunnari Má Haukssyni.

Annað málverkið er af sjómanni og er frá árinu 1926. Ekki er vitað hver hann er og eru því allar upplýsingar um manninn á myndinni vel þegnar. Haukur Þorleifsson bróðir Jóns og faðir Gunnars Más skar rammann utan um myndina af sjómanninum út.

Hitt málverkið er af móður Jóns Þorleifssonar Sigurborgu í Hólum, en hún fæddist árið 1866 í Krossbæjargerði, en settist að á Hólum með manni sínum Þorleifi Jónssyni alþingismanni og bjó þar alla sína tíð.

Jón Þorleifsson fæddist 26. desember árið 1891 í Hólum, Höfn í Hornafirði. Hann bjó þar þangað til árið 1912 en hóf þá nám við Flensborgarskóla í Hafnarfirði. frá 1918 til 1921 lærði hann málaralist við Teknisk Selskabs Skole í Kaupmannahöfn og Académie de Croquis árið 1921 til 1922.

Jón flakkaði nokkuð á milli Íslands, Danmerkur og Frakklands og starfaði sem listmálari á þessum stöðum frá árinu 1922 til ársins 1938. Hann settist alfarið að á Íslandi árið 1938 og starfaði sem bókari hjá Sparisjóði Nesjahrepps. Jón var um tíma listgagnrýnandi Morgun¬blaðsins. Einnig hlaut hann hinn merka heiður að verða riddari af konunglegu Vasa-orðunni.

Á meðal verka Jóns voru 33 metra langt málverk í New York, altaristafla af fæðingu frelsarans í Bjarnaneskirkju og ýmis verk í Listasafni Íslands (Súlur, Flosagjá, Örœfa¬jökull, skip í Reykjavíkurhöfn). Jón málaði látlausar og fremur raunsæjar náttúrulífsmyndir en expressjónískra áhrifa gætti einnig í verkum hans. Hús, þorp, bátar og fólk urðu meira áberandi í verkunum með árunum og seinna meir var Jón undir áhrifum frá Fauvisme.

Hann var einn af hinum fáu „yngri“ málurum sem valdir voru á yfirlitssýningu íslenskrar listar í Kaupmannahöfn og Þýskalandi 1927-28, og á hinni opinberu sýningu af tilefni Alþingishátíðar 1930 var honum enn skipað á bekk með hinum „viðurkenndu“ listamönnum. Hann lést þann 14. júlí 1961, 69 ára að aldri.

Málverkið eftir Bjarna Guðmundsson var í eigu hjónanna Guðrúnar Jónsdóttur Hjartar og Hjartar Ó. Hjartar. Eftir að hjónin dóu eignaðist dóttir þeirra Elín Hjartar málverkið, en hún þekkti vel til áhuga föður síns á málefnum Hornafjarðar og gaf því myndina sveitafélaginu til varðveislu og ráðstöfunar.

Trúlega hefur Hjörtur keypt myndina af Bjarna Guðmundssyni á listaverkasýningu. Verkið er vatnslitaverk frá árinu 1958 og er landslagsmálverk, yfir Þveitina, gamli sundlaugarskúrinn er einnig í verkinu og útsýnið yfir Viðborðsfjall sést vel.

Bjarni Guðmundsson fæddist 2. maí 1885 í Voninni á Papós. Hann bjó í foreldrahúsum á Papós 1886-97 og Hól á Höfn 1897-1905. Hann var við nám í Gagnfrœðaskóla Akureyrar 1905-06. Bjarni flutti aftur á Höfn 1906 og bjó þar alla ævi síðan.

Árið 1907 tók hann þátt í að stofna Málfunda- og glímufélagið Mána. Hann kenndi söng í unglingaskólanum á Höfn um tíma og var bókari hjá Þórhalli Daníelssyni 1907-1920.

Bjarni starfaði hjá KASK 1920-61 sem aðalbókari og fulltrúi 1920-43. Hann var kaupfélagsstjóri 1943-52. Hann var einnig með dálítinn búskap. Hann leigði ræktunarland í Lönguhólum og hafði yndi af kindum og var formaður í Fjárræktarfélagi Hafnarmanna og Sauðfjárræktarfélagi Austur-Skaftafellssýslu.

Bjarni fór ungur að teikna skip, sem komu á Hornafjörð. Á þrítugsaldri byrjaði hann að mála á striga. Einkum eftir 1952 málaði hann mikið, myndir frá Höfn og landslagsmyndir víða úr sýslunni. Hann hélt sýningu í Reykjavík 1957 og seldi allar myndirnar fljótt. Hann hélt aðra sýningu í Reykjavík 1959 og aftur runnu verkin út eins og heitar lummur. Hann lést 1. maí. 1962, 76 ára að aldri.

Málverkin munu prýða vegg Bókasafnsins út septembermánuð.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica