Menning
Hvalnes
Hvalnes
Mynd eftir Felicity Bullock af Hvalnesi
Mynd 4 af 5
1 2 3 4 5

16.09.2010

Vetrarstarf Menningarmiðstöðvarinnar hafið

Fram undan hjá Menningarmiðstöð

Vetrarstarf Menningarmiðstöðvarinnar er að hefjast og kennir ýmissa grasa í starfinu fram undan. Fastir liðir eins og föstudagshádegi Nýheima, prjónakaffi, sögustundir og Veggurinn minn verða á sínum stað en hægt er að finna upplýsingar um þessa viðburði á heimasíðu sveitafélagsins eða á http://www.rikivatnajokuls.is/vidburdir 

Í september verður sett upp í Nýheimum sögusýning um Sigríði Jónsdóttir frá Vogum og fjölskyldu hennar en hún var móðir Nonna og Manna.

Lifandi myndir sem tengjast sveitafélaginu verða sýndar reglulega á Bókasafninu fram á vor, má þar nefna gamla þætti um Höfn frá árunum 1969 til 1977, myndir og viðtöl sem Heimir Þór Gíslason tók í gegnum tíðina og myndir frá Rafni Eiríkssyni verða einnig sýndar.

Danskvöld verða einu sinni í mánuði á Víkinni og hefjast í september, kvöldin eru ætluð í almenna dansa og eru öllum opin.

Skjalasafnið býður upp á þematengdar sýningar sem verða mánuð í senn til sýnis á Bókasafninu og hefjast í september, má þar nefna viðfangsefni eins og veður, brúðkaup, lækna og ljósmæður ofl.

Í október verða til sýnis í Nýheimum náttúru og dýralífsmyndir frá Felicity og Michael Bullock en þau ferðast út um allan heim og taka myndir. Hjónin hafa verið reglulega á Höfn síðustu ár og eiga hús á Hvalnesi og hafa tekið þátt í áhugaljósmyndasýningum hjá Menningarmiðstöðinni.

Í nóvember verður haldið upp á Norrænu Bókasafnavikuna á Bókasafninu.Þetta er í 14 skipti sem vikan er haldin, með það fyrir augum að gæða norrænu sagnahefðina nýju lífi. Þema sýningarinnar í ár er Töfraheimar Norðursins.

Sýning á verkum eftir David White verður sett upp í Nýheimum í nóvember, en David er mörgum Hornfirðingum góðkunnur þar sem að hann dvaldi hér fyrir um 20 árum og margir eiga verk eftir hann sem verða á sýningunni.

Norræni skjaladagurinn verður 13. nóvember. Sameiginlegt þema allra norðurlandanna að þessu sinni er „veður og loftslag“. Sýning um það efni verður sett upp í Bókasafninu.

Í desember verður handverkið í hávegum haft en þá munu verða settar upp sýningar í Nýheimum á verkum Ragnars Arasonar rennismiðs sem valinn var handverksmaður ársins 2010 og Gísla Eysteins Aðalsteinssonar en hann var tilnefndur til Menningarverðlauna árið 2009 fyrir blýantsteikningar sínar.

Jólamarkaðurinn verður á sínum stað í Nýheimum en þar verður selt handverk, hönnun og matur úr Ríki Vatnajökuls.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica