Sögusýning um Sigríði Jónsdóttur frá Vogum og fjölskyldu hennar
Sýning í miðrými Nýheima um Sigríði Jónsdóttir móðir Nonna og Manna
Sigríður Jónsdóttir frá Vogum í Reykjahlíð við Mývatn var kjarnakona og móðir þeirra bræðra Nonna og Manna. Sigríður missti mann sinn Svein Þórarinsson snemma og þurfti því að láta öll börnin sín frá sér í fóstur nema Manna. Sigríður flutti síðar til Kanada og giftist þar aftur manni að nafni William Taylor. Hún var víðsýn, greind og vel lesin kona og hafði mikil áhrif til góðra verka barna sinna. Nonni hefur reist henni minnisvarða í bókum sínum, en hann varð heimsfrægur rithöfundur og samdi 12 barnabækur sem þýddar hafa verið á um 40 tungumál. Hann ferðaðist mikið og var á sinni tíð víðförlasti Íslendingurinn og trúlega sá frægasti. Á sýningunni sem stendur út september er saga fjölskyldunnar rakin. Allir velkomnir Menningarmiðstöð Hornafjarðar.



