Óvissuferð barnastarfs Menningarmiðstöðvarinnar
Síðasta fer Barnastarfsins í sumar
Síðasta ferðin í Barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar var á þriðjudaginn í dýrindis veðri. Tíðkast hefur að hafa síðustu ferð barnastarfsins óvissuferð en í þetta skiptið var haldið á Mýrarnar. Fyrsti áfangastaður var Dýragarðurinn í Hólmi en þar tóku Guðrún og Guðjón vel á móti okkur og sýndu okkur öll dýrin sem þar búa. Kiðlingurinn Gosi var í miklu uppáhaldi hjá krökkunum en hann fæddist þegar gosið í Eyjafjallajökli hófst og hefur því nafnið sitt þaðan. Hornfirðingar hafa verið duglegir við að skoða dýragarðinn en Guðjón ráðsmaður sagði okkur að um 40% allra gesta séu Hornfirðingar. Eftir heimsóknina í Hólm var haldið að Gervisholti þar sem grillaðar voru pylsur og sullað í hyljum og lækjum. Síðasti áfangastaður ferðarinnar var svo Brunnhóll en þar fengu krakkarnir jöklaís en hann þekkja þau vel. Starfsfólk Menningarmiðstöðvarinnar vil þakka fyrir frábært og viðburðaríkt sumar og hlakkar til að sjá ykkur aftur krakkar næsta sumar.



