Menning
Eyðibýlaskoðun
Eyðibýlaskoðun
Eyðibýlaskoðun í Þórisdal
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

12.08.2010

Eyðibýlaskoðun í Þórisdal

Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar

Í barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar síðasta þriðjudag var farið í eyðibýlaskoðun í Þórisdal í Lóni með 9 hressa krakka. Býlið Þórisdalur var skoðað en það lagðist í eyði árið 1968 eða fyrir 42 árum síðan. húsið stendur ennþá, þó svo að þakið, veggir og loft séu hrunin. Á býlinu bjuggu síðast Egill Benediktsson og Guðfinna Sigurmundsdóttir. Eftir að býlið var skoðað var borðað nesti í trjálundinum þar sem steindrangurinn Þórir stendur. Einnig var farið í fjallgöngu upp á Dalsnúp og þar löguð varða sem gerð var í barnastarfinu fyrir 3 árum síðan. Næsta þriðjudag er síðasta ferðin í barnastarfinu í sumar en þá verður farið í óvissuferð.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica