Menning
Guðný og Peter
Guðný og Peter

25.07.2010

Einstakur menningarviðburður  í Suðursveit

Þórbergssetur stendur  fyrir tónleikum í Kálfafellsstaðarkirkju á Ólafsmessu 29. júlí ásamt sóknarpresti Séra Einari G . Jónssyni.  Dagskráin hefst með helgistund klukkan 14:00. Fjallað verður um sögu kirkjunnar og staðarins og rifjuð upp gömul saga um mátt Ólafs helga,  en kirkjan var helguð honum í kaþólskum sið.

            Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og konsertmeistari Sinfoníuhljómsveitar Íslands  og Peter Máté píanóleikari verða síðan með tónleika í kirkjunni.   Á dagskránni eru einleikslög eftir Bach,  vinsæl og þekkt íslensk lög ásamt sígauna-  og vínartónlist.  Kálfafellstaðarkirkja er ágætis tónleikahús með  góðum hljómburði og því er það mikið tilhlökkunarefni að fá svo færa listamenn í heimsókn  Í lok dagskrár verður farið í heimsókn að völvuleiði í landi Kálfafellsstaðar oggömul saga um Völvuna á Kálfafellsstað og mátt hennar rifjuð upp.

            Ferðamenn sem eiga leið um Suðursveit á þessum tíma ættu ekki að láta þennan merka listviðburð framhjá sér fara.  Gömul helgisaga, þjóðtrú, klassísk tónlist og útivera, menning og saga, trú og veruleiki, það að koma í Suðursveitina eina dagstund og njóta þessa alls er nýstárleg upplifun.

Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Austurlands  og Þórbergssetri.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica