Fuglaskoðunarferð í Óslandið
Barnastarf Menningamiðstöðvarinnar
Á þriðjudaginn fóru krakkarnir í barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar í fuglaskoðunarferð í Óslandið. Leiðsögumaðurinn í ferðinni var Björn Arnarsson en hann fræddi krakkana um alla fuglana sem að verpa í Óslandinu á sumrin. Krakkarnir tóku margir með sér Kíki og einhverjir höfðu hjólahjálmana sína á hausnum svo að Krían goggaði ekki í þá. Við sáum margar tegundir af fuglum í ferðinni og má þar nefna Æðafugl, Spóa, Hettumáv, Óðinshana og Sandlóu. Algengasta fuglategundin Krían var áberandi í Óslandinu en krakkarnir skoðuðu Kríuungana vel og fengu að merkja 9 unga með fuglamerkjum, einnig voru 2 Tjaldsungar merktir en merkingarnar geta til dæmis sagt til um aldur fuglanna og farleiðir þeirra. Við þökkum Bjössa kærlega fyrir leiðsögnina og minnum á að næsta ferð hjá Barnastarfinu er inn í Hoffell en þar verður farið í heitu pottana. Munið svo að skrá ykkur á Bókasafninu í allar ferðir krakkar.



