Menning
Kvikmyndagerð
Kvikmyndagerð

10.06.2010

Kvikmyndagerðarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 9 -18 ára

Í vikunni fyrir Humarhátíð verður haldið námskeið í leiklist og kvikmyndagerð fyrir 9 - 18 ára. Að námskeiðinu stendur menntað fólk í kvikmyndagerð sem hefur töluverða starfsreynslu í greininni, auk þess að vinna með börnum.

 

Kvikmynda/leiklistarnámskeið fyrir 9. 10. og 11 ára.

 

Krakkarnir byrja í leiklistarkennslu þar sem hugmyndir að persónum og söguþræði verða þróaðar í handrit. Handritið verður skrifað og undirbúið fyrir tökur. Allir hjálpast að við að finna búninga við hæfi, leikmuni og tökustaði. Að lokum verður stuttmyndin tekin upp, klippt og haldin frumsýning.

Allir þátttakendur fá myndina á dvd disk.

Námskeiðið er frá mánudegi – föstudags: frá kl. 8 – 12 vikuna 28.júní til 2.júlí.

                                                                                                          Kvikmynda/leiklistarnámskeið fyrir 12. 13. og 14 ára. 

Farið verður í hina ýmsu þætti við kvikmyndagerð. Unnin verða skapandi og krefjandi verkefni eftir áhugasviðum einstaklinganna: leiklist/tækni/leikstjórn ofl. allt eftir fjölda áhugasamra um hvert svið. Þátttakendur gera einnig sameiginlega stuttmynd, þar sem unnið verður handrit úr hugmyndum, handritið æft, undirbúið, tekið upp, klippt og að lokum frumsýnt. Allir þátttakendur frá myndina á dvd disk.

Námskeiðið er frá mánudegi-föstudags: frá kl. 13 – 18 vikuna 28.júní til 2.júlí.

Ef áhugi er fyrir hendi verður einnig boðið upp á kvöldnámskeið fyrir unglinga á aldrinum 15-18 ára. Áhugasamir skrái sig hjá Söndru Steinþórsdóttur í síma 849-6070.

 

Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig á námskeiðið eða leita frekari upplýsinga geta gert það hjá Söndru Steinþórsdóttur, yfirleiðbeinanda námskeiðsins, í síma 849-6070 eða á tölvupóstinum skaldasandra@gmail.com fyrir 16.júní. Takmarkanir eru á plássum.

 

Að námskeiðinu stendur menntað fólk í kvikmyndagerð sem hefur töluverða starfsreynslu í greininni, auk þess að vinna með börnum. Þrír leiðbeinendur verða á hverju námskeiði. Tveir menntaðir kvikmyndagerðamenn sem verða á öllum námskeiðunum og einn menntaður leikari verður á hverju námskeiði en misjafnt verður eftir landshlutum og tímasetningu námskeiða hvaða leikari verður með okkur.

Yfirleiðbeinandi:

Sandra Steinþórsdóttir, kvikmyndagerðakona f. 1986. Er með diploma í handritsgerð og leikstjórn frá Kvikmyndaskóla Íslands vorið 2009.  Sandra hefur unnið í greininni síðan. Að auki hefur hún mikla reynslu af að vinna með börnum. Var umsjónarmaður í Sumarbúðunum Ævintýralandi 2008 og leiðbeinandi á kvikmyndagerðanámskeiði þar. Sandra hefur líka leiðbeint unglingum í kvikmyndagerð fyrir ungmennafélög.

Tæknimaður/leiðbeinandi:

Viktor Davíð Jóhannsson, kvikmyndagerðamaður f.1986. Lauk grunndeild í sjónvarps og kvikmyndaframleiðslu frá Medieskolerne i Viborg 2005. Er með diploma af tæknisviði frá Kvikmyndaskóla Íslands vorið 2009. Viktor hefur unnið í greininni síðan. Meðal stærri verkefna Viktors eru Jóhannes, Bjarnfreðarson, Réttur 2.

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica