Veggurinn minn
Gauti Árnason á vegginn
Tvær myndir eftir Bjarna Guðmundsson prýða vegginn þessa vikuna. Báðar myndirnar eru málaðar um 1950 og eru í eigu Gauta Árnasonar og móður hans Svövu Sverrisdóttir en hún og maður hennar Árni Stefánsson fengu báðar myndirnar upprunalega að gjöf. Önnur myndin sem er málverk af Hvanneyjarvita og umhverfi hans, var gjöf til Svöfu frá Ingibjörgu Gunnlaugsdóttir konu Bjarna Guðmundssonar listmálara. Hin myndin er af Ketilaugafjalli í Nesjum og var brúðkaupsgjöf til þeirra hjóna Svövu og Árna frá Ingibjörgu og Bjarna en þau giftu sig 17. apríl 1954.



