Menning
dansnámskeið 2010
dansnámskeið 2010
Dansnámskeið Grunnskólabarna 2010
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

04.05.2010

Heimsókn frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru

Dansnámskeið

Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sótti okkur Hornfirðinga heim í síðustu viku og hélt námskeið fyrir grunnskólabörn frá 6 og upp í 16 ára en hélt svo einnig opið kvöldnámskeið fyrir alla þá sem vildu bæta sig í dansi. 14 manns nýttu sér kvöldnámskeiðin þegar mest var og var aðallega farið í að kenna tjútt, en einnig var kenndur grunnur að salsadansi. Danskvöldin voru þrjú talsins og gengu mjög vel, farið var yfir öll getusting í dansinum, byrjendur lærðu grunnspor og upp úr og lengra komnir lærðu framhald af því sem þeir lærðu í fyrra. Krakkarnir sem lærðu að dansa hjá Jóni Pétri buðu svo upp á danssýningu í Íþróttahúsinu fyrir fullu húsi og sýndu meðal annars tjútt, rokk og dönsuðu svo allir árgangarnir saman Mickael Jackson dansa í enda sýningarinnar. Næsta haust verður svo boðið upp á danskvöld einu sinni í mánuði þar sem fólki gefst tækifæri á að halda dansinum við. Öll föstudagskvöld í byrjun mánaðar verður dansað frá 21:00 til 23:00 og eru allir velkomnir á þessi danskvöld, en þau verða nánar auglýst síðar.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica