Dans dans dans
Dansskóli Jóns Péturs og Köru væntanlegur
Jón Pétur hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru verður með dansnámskeið fyrir Hornfirðinga í næstu viku. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem að sóttu námskeið hjá honum í fyrra, bæði til að rifja upp dansa og læra nýja. Danskvöldin verða 3 talsins dagana 27, 28 og 29 apríl og hefjast öll klukkan 20:00. Athugið að fyrsta danskvöldið er í Íþróttahúsi Hafnar og seinni kvöldin verða í Sindrabæ. Dansað verður til klukkan 21:30 og stakir geta komið og lært spor, dansarar á öllum stigum í dansi geta nýtt sér kennsluna hvort sem það eru byrjendur eða lengra komnir. Ekki er nauðsynlegt að mæta á öll danskvöldin heldur ræður fólk hvort það komi á eitt kvöld eða öll. Kvöldið kostar 1000 krónur á manninn. Nýtið þetta frábæra tækifæri og lærið að dansa!



