Menning
Björg tekur við Þorrablótinu 2010 á DVD
Björg tekur við Þorrablótinu 2010 á DVD
Mynd 2 af 2
1 2

11.03.2010

Þorrablótið komið á Bókasafnið

 

Það var nú aldeilis hamingja þegar formaður og leikstjóri þorrablótsnefndar mættu á Bókasafnið og afhentu DVD disk með þorrablóti Hafnarbúa 2010.  Það var forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar ungfrú Björg Erlingsdóttir sem veitti diskinum viðtöku.  Mikil ræðuhöld voru af þessu tilefni og ein af þeim sem stigu í pontu var Björg sjálf en hún er nú ekki mikið fyrir að tjá sig.  Hún sagði að tilefnið hefði bara verið svo mikið þar sem mikil eftirspurn hafi verið eftir þessum diski og að jafnvel sé talað um nýjar vinnureglur í sambandi við útleigu þar sem skammtímaleiga verði, ef þessi tillaga nær fram að ganga, einn klukkutími og fjörtíu og fimm mínútur í staðinn fyrir ein vika.  Að vísu skapaði það töluverða vinnu að skipta um miða á öllum hinum vörunum sem lítið sem ekkert hreyfast miðað við þessa sjóðheitu vöru eins og hún orðaði það.  Margir fleiri tóku til máls og brann það á vörum margra að erfitt gæti verið fyrir einhverja aðra að nálgast menningaverðlaunin fyrir árið 2010 því þetta væri svoddan listaverk.  Sumir tóku svo stórt upp í sig að Ron Jeremy hefði fölnað við að Baltaverðlaunin væru jafnvel á leið í fjörðinn fagra. Það má nú segja að það var ekki fyrr en formaður og leiksstjóri þorrablótsnefndar komu saman upp og þökkuðu fyrir þessar móttökur og slógu á þessar bjartsýnisraddir um að þetta verk ætti eftir að sópa að sér verðlaunum. Þeir bentu nú á að þetta væri nú BARA þorrabót en þökkuðu enn og aftur og þá sérstaklega öllum þeim Hafnarbúum og gestum þeirra fyrir að nenna að glápa á þetta rugl. Hógværir menn þarna á ferð! 

Í tilefni af útkomu þessa disks þá var settur inn trailer á facebooksíðu Hafnarbúa og er slóðin á hann hér http://www.facebook.com/video/video.php?v=1267477885490&oid=188554549392

 

 

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica