Menning
Ljósmyndari að störfum
Ljósmyndari að störfum
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

16.02.2010

Þá er komið að annarri áhugaljósmyndasýningu í Pakkhúsinu

Áhugaljósmyndasýning

Þá er komið að annarri Áhugaljósmyndarasýningu í Pakkhúsinu. Fyrirhugað er að halda aðra áhugaljósmyndarasýningu í Pakkhúsinu í mars. Sýningin verður opnuð í byrjun mánaðarins, nánar tiltekið laugardaginn 6. mars og mun standa út mánuðinn. Sýningin er samstarfsverkefni Menningarmiðstöðvar og Sigurðar Mar eins og í fyrra og allir sem hafa áhuga á að taka þátt í ljósmyndasýningunni geta sent inn myndir á netfangið gudlaugp@hornafjordur.is Myndirnar geta verið í skjáupplausn og mun dómnefn velja úr innsendum myndum. 27 myndir verða settar í ramma en öðrum verður svo varðað upp á skjá. Síðasti dagur til að senda inn myndir er 25. febrúar. Í ár verður bryddað upp á þeirri nýjung að hafa þemað „RÍKI VATNAJÖKULS“ sem aðalþema fyrir myndirnar. Þemað má tengjast hverju sem er, svo lengi sem það er innan sveitafélagsins, til dæmis mannlíf, náttúra og staðir. Ef vel tekst til með sýninguna er fyrirhugað að búa til bók með myndum eftir áhugaljósmyndara sem yrði svo til sölu á svæðinu. Í bókinni myndu koma fram upplýsingar um ljósmyndara, mynd af þeim, grunnupplýsingar um áhuga þeirra á ljósmyndun og svo auðvitað myndirnar sem verða til sýnis á áhugaljósmyndasýningunni, en þær 27 myndir sem valdar verða í ramma á áhugaljósmyndasýningunni yrðu sýndar í bókinni. Það er því mikilvægt að þátttakendur sendi einnig inn mynd af sjálfum sér, ásamt upplýsingum á borð við aldur, kyn og ljósmyndaáhuga (af hverju ljósmyndun, hversu lengi viðkomandi hefur tekið myndir og hvaða myndefni höfðar mest til hans). Einnig er æskilegt að fram komi upplýsingar um fyrri sýningar ef einhverjar og annað sem fólk vill að komi fram. Frekari upplýsingar um sýninguna hjá Guðlaugu Ósk gudlaugp@hornafjordur.is og 4708057

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica