Menning
Frá Jöklasýningu
Frá Jöklasýningu
Frá Jöklasýningu
Mynd 1 af 3
1 2 3

08.12.2009

Helgi Björnsson jöklafræðingur er með kynningu vegna nýútkominnar bókar sinnar Jöklar á Íslandi ásamt góðum gestum í Pakkhúsinu

Bókakynningar í Pakkhúsinu þriðjudaginn 15. desember klukkan 20:00

Helgi Björnsson jöklafræðingur heldur fyrirlestur vegna nýútkominnar bókar sinnar Jöklar á Íslandi, með honum í för er Kristín G. Guðnadóttir sem skrifað hefur um Svavar Guðnason Listmálara. Kynningarnar verða í Pakkhúsinu þriðjudagskvöldið 15. desember klukkan 20:00. Allir eru velkomnir.

Helgi Björnsson Jöklafræðingur og vísindamaður við Raunvísindadeild Háskóla Íslands er Hornfirðingum góðkunnur vegna undirbúnings og uppsetningar Jöklasýningar. Jöklar á Íslandi er mikið rit byggt á áratuga rannsóknum Helga Björnssonar og samstarfsmanna hans við Háskóla Íslands og víðar. Bókin lýsir jöklum landsins og sambúð þjóðarinnar við þá frá upphafi byggðar til okkar daga, hvernig jöklar hafa mótað landið og eytt. Bókin rekur sögu þekkingaröflunar og skilnings á jöklum, frá því fyrst var farið að kanna þá fram til nútímarannsókna. Rakin eru spor löngu horfinna jökulbreiða, hulunni svipt af landinu undir jöklum íslands og greint frá líklegri framtíð þeirra. Bókin er búin fjölbreytilegu myndefni, ljósmyndum, skýringarmyndum, landakortum, gervihnattarmyndum og þrívíðum kortum af landslagi undir jöklum. Meginverkefni Helga hefur verið kortlagning á yfirborði og botni jökla með íssjármælingum og könnun á hegðun þeirra bæði í nútíð og fortíð, en einnig hvernig ætla má að loftlagsbreytingar hafi áhrif á þá til framtíðar.

Kristín G. Guðnadóttir listfræðingur hefur skrifað glæsilega bók um mikilfenglegan feril Svavars Guðnasonar listmálara og hefur hún unnið að rannsókn sinni á ferli og verkum hans um árabil. Svavar Guðnason var í hópi fremstu listamanna Evrópu eftirstríðsáranna og er sá myndlistamaður þjóðarinnar sem mesta athygli hefur vakið erlendis auk þess að vera brautryðjandi í íslenskri myndlist. Í bók Kristínar er ferill Svavars skoðaður og settur í sögulegt samhengi við íslenska og evrópska myndlist og myndir birtar af fjölmörgum verka hans. Þá er einnig fjallað um lífshlaup Svavars og persónulega hagi. Kristín er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár fyrir bók sína um Svavar.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica