Menning
Jóna Á. Gísladóttir les á rithöfundakvöldi í Pakkhúsinu 2008
Jóna Á. Gísladóttir les á rithöfundakvöldi í Pakkhúsinu 2008
Jóna Á. Gísladóttir les á rithöfundakvöldi í Pakkhúsinu 2008

26.11.2009

Árleg bókakynning Bókasafnsins

Rithöfundar kynna bækur sínar

Þá er komið að því! Hin árlega Bókakynning Bókasafnsins verður mánudagskvöldið 30. nóvember kl. 20:30 í Pakkhúsinu en einnig fara rithöfundarnir í heimsókn í skólana. Eftirfarandi höfundar mæta og kynna bækur sínar: Kristín Marja Baldursdóttir - Karlsvagninn, sem er skáldsaga Kristín Marja sendi síðast frá sér bækurnar um Karitas sem gerast að hluta til hér í sýslu. Vilborg Davíðsdóttir - Auður, bókin fjallar um Auði djúpúðgu og er í flokki sögulegra skáldverka, Vilborg hefur til dæmis skrifað Korkusögu og fleiri bækur sem gerast á öldum áður. Yrsa Sigurðardóttir - Horfðu á mig, í þessari bók er áfram fjallað um lögmanninn Þóru Guðmundsdóttur sem fæst við allskyns glæpamál. Yrsa hefur líka skrifað nokkrar bækur fyrir börn má þar nefna bókina Þar lágu danir í því, sem kemur núna út sem hljóðbók. Hjalti Þór Vignisson - Skaftfellskar þjóðsögur og sagnir, loksins kom að því að þessi bók væri endurútgefin, en hún kom fyrst út fyrir 60 árum síðan. Bókin er ríkulega myndskreytt og bætt hefur verið við nokkrum ævintýrum. Kristín Jónsdóttir - Bréf til næturinnar, er fyrsta ljóðabók höfundar, en hún hefur samið ljóð í fjölda ára. Halldór Halldórsson - Réttir úr ríki Vatnajökuls, þetta er frumraun höfundar sem er matreiðslumaður að mennt, hann fór á sjóinn og tók myndir af fiskum og humri og einnig fylgdi hann veiðibráðinni eftir með myndavél og byssu. Einnig verður kynnt nýútkomin bók um Svavar Guðnason listmálara. Tónlistaratriði í höndum Sigga Palla og félaga

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica