Menning
Markaðstorg Hornabæ
Markaðstorg Hornabæ
Markaðstorg Hornabæ

19.11.2009

Jólamarkaðurinn í ár verður 5. desember

Jólamarkaður 5. desember

Árlegur jólamarkaður verður haldin í Nýheimum og í Miðbæ þann 5. desember næstkomandi. Markaðurinn hefur verið haldin árlega frá árinu 2003 og hefur vakið mikla lukku. Fleiri aðilar bætast við árlega og sjá fleiri og fleiri hag sinn í því að koma vörum sínum á framfæri á jólamarkaðnum, enda kjörið tækifæri fyrir alla að versla hornfirskar afurðir í jólapakkann. Allir sem áhuga hafa á því að selja hluti á markaðnum hvort sem það er nytjavara, handverk eða matur geta sent tölvupóst á gudlaugp@hornafjordur.is Gefa þarf upp nafn, símanúmer og söluvöru, einnig þarf að koma fram hvort að viðkomandi vilji vera með bás í Nýheimum eða í Miðbæ. Gjaldið fyrir matvöru af öllu tagi er 3000 krónur fyrir básinn en almenn vara kostar 2000 krónur básinn.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica