Menning
Málverk Svavars Guðnasonar
Málverk Svavars Guðnasonar
Málverk Svavars Guðnasonar (úr myndasafni)

19.11.2009

100 ár liðin frá fæðingu Svavars Guðnasonar

Í gær, 18. nóvember, voru 100 ár liðin frá fæðingu hornfirðingsins Svavars Guðnasonar listmálara. Af því tilefni kemur út hjá bókaforlaginu Veröld stórvirkið Svavar Guðnason eftir Kristínu G. Guðnadóttir listfræðing. Svavar Guðnason var í hópi fremstu listamanna Evrópu eftirstríðsáranna. Hann er tvímælalaust sá myndlistarmaður þjóðarinnar sem mesta athygli hefur vakið erlendis auk þess að vera brautryðjandi í íslenskri myndlist.

Nú stendur yfir sýning Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar á verkum Svavars sem eru í eigu Sveitarfélagsins í Ráðhúsi Hornafjarðar.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica