Norræna bókasafnsvikan
Norræna bókasafnavikan stendur nú yfir á Bókasafninu. Þema vikunnar er Stríð og friður á Norðurlöndunum. Norræna bókasafnavikan er haldin samtímis á öllum Norðurlöndunum. Til sýnis eru myndir og munir frá stríðsárunum.
Einar Áskell er í aðalhlutverki ásamt sögupersónum úr bókum Astrid Lindgren. Settur hefur verið upp ratleikur í Bókasafninu til að rifja upp kynni fólks við gamla kunningja. Dregið verður úr svörum á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember.



