Menning
frostrosir 2009
frostrosir 2009
frostrósir
Mynd 1 af 2
1 2

09.11.2009

Tónlistin ræður ríkjum í nóvember og desember

Hjaltalín og Frostrósir heimsækja Hornfirðinga

Hornfirðingar geta hlakkað til í nóvember og desember, nóg verður um að vera í tónlistarlífinu á Hornafirði. Þann 22. nóvember fáum við hljómsveitina Hjaltalín í heimsókn til okkar en þau eru á tónleikaferð um landið í tilefni að annarri plötu sinni Terminal. Með þeim í för eru hljómsveitin Heiðurspiltar ásamt Sigríði Thorlacius og Snorri Helgason úr Sprengjuhöllinni. Tónleikarnir verða í Pakkhúsinu sunnudagskvöldið 22. nóvember klukkan 20:30 og kostar 2500 krónur inn. Þann 2. desember munu Frostrósir sækja okkur Hornfirðinga heim og koma okkur í jólaskapið. Lofa Frostrósir glæsilegustu jólatónleikunum til þessa. Margrét Eir, Guðrún Gunnars, Hera Björk, Friðrik Ómar og Jóhann Friðgeir skemmta okkur með ljúfum tónum þetta árið, í fylgd fjölda hljóðfæraleikara og barnakórs. Söngvararnir munu flytja vinsælustu lög Frostrósa ásamt helstu perlum jólatónlistarinnar. Tónleikarnir verða í Íþróttahúsinu miðvikudaginn 2. desember klukkan 20:00. Húsið opnar klukkan 19:30 og er miðaverðið 3990. Miðana er hægt að kaupa á midi.is og svo á Pósthúsinu.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica