Menning
Nýheimar
Nýheimar.

11.09.2009

Kynning á verkefnum sem fengið hafa styrki í Nýheimum

Þann 24. október næstkomandi er fyrirhugaður kynningardagur í Nýheimum þar sem kynnt verða verkefni sem hlotið hafa styrki frá Sveitarfélaginu Hornafirði og stofnunum inna Nýheima, en þær stofnanir eru Matís og Nýsköpunarmiðstöðin. Allt eru þetta verkefni sem hafa verið unnin með styrkjum og aðkomu þessara stofnanna. kynntar verða vörur, þjónusta og sala á vörum.  Tilgangurinn með deginum er sú að gera íbúum sveitafélagsins sýnilega þá möguleika sem í boði eru í sambandi við styrkveitingar og þá þjónustu sem stofnanirnar innan Nýheima bjóða upp á, ásamt sveitafélaginu. Jafnframt verður farið yfir það hvað komið hefur út úr þeim verkefnum sem nú þegar hafa hlotið styrki og búið er að framkvæma. ÞNA - Þekkingarnetið verður einnig með kynningu á þeim námskeiðum sem boðið verður upp á hjá þeim í vetur, en fjölmörg námskeið verða í gangi allt árið og eru þau mjög fjölbreytt. Þessi dagur er kjörinn fyrir alla þá sem eru með hugmyndir og langar til að koma þeim í framkvæmd, til að koma og kynna sér hvað er í boði hérna í sveitafélaginu okkar.

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica