Menning
Þjóðahátíð 2009
Þjóðahátíð 2009
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

11.09.2009

Framundan hjá Menningarmiðstöðinni

Nú er haustið komið og Menningarmiðstöðin er farin að skipuleggja veturinn. Föstudagshádegi í kaffiteríu Nýheima verða á sínum stað, en á hverjum föstudegi á milli klukkan 12:00 og 13:00 verður boðið upp á viðburði af ýmsu tagi. Prjónakaffið vinsæla verður áfram í Bókasafninu annan hvern laugardag frá klukkan 14:00 til 16:00 og verður prjónakaffið annan og fjórða hvern laugardag í mánuði. Barnastarfið verður svipað og síðustu árin og veðrur það á Bókasafninu á hverjum fimmtudegi klukkan 14:15. Bryddað verður upp á  þeirri nýjung að hafa  taflkvöld einu sinni í viku í Pakkhúsinu en þau munu hefjast klukkan 20:00 og eru öllum opin sem áhuga hafa á skák. Einnig verða fleiri nýjungar í ár en fyrirhugað er að hafa myndlistasýningu áhugamálara seinna á árinu ef næg þátttaka verður. Nýr liður sem nefnist Veggurinn minn er á dagskránni en þar gefst fólki tækifæri til þess að koma með sín eftirlætis verk, málverk eða ljósmyndir á Bókasafnið, þar sem verkið mun hanga í vikutíma. Settur verður af stað hugmyndabanki inn á síðu sveitafélagsins www.rikivatnajokuls.is þar sem fólki gefst tækifæri til þess að koma með hugmyndir að nýjum viðburðum sem hægt er að framkvæma í samstarfi við Menningarmiðstöðina. Von bráðar mun svo Menningarmiðstöðin senda frá sér viðburðardagatal þar sem fram koma viðburðir hvers mánaðar. Að sjálfsögðu verður ljósmyndasýning áhugaljósmynda á sínum stað eins og í fyrra og eins verður með Þjóðahátíðina og áframhald frá síðasta dansnámskeiði. Von er á stórtónleikum með Mannakornum og KK og Ellen í nóvember, ásamt fleiri smærri tónleikum. Þessum viðburðum á eftir að fjölga eftir því sem líður á veturinn og hlökkum við til að sjá ykkur öll í vetur.

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica