Menning
Gusta design
Gusta design
Mynd 3 af 6
1 2 3 4 5 6

16.07.2009

Handapat

Handverks og hönnunarsýningin Handapat hefur verið í Nýheimum frá því á Humarhátíð og hefur hún vakið mikla lukku og fengið marga gestina. Alls eru 9 listamenn sem eiga verk á sýningunni og eru 5 þeirra frá Hornafirði eða eiga ættir sínar að rekja þangað. Nú er sýningin hins vegar að líða undir lok, en hægt verður að skoða hana í dag og á morgun á opnunartíma bókasafnsins, eða frá klukkan 10:00 til 16:00. Sýningin er sölusýning og því er þetta kjörið tækifæri til að kaupa flottar afmælis og jólagjafir eða bara gera vel við sjálfan sig og kaupa eitthvað fallegt. Einnig eru myndir frá ljósmyndamaraþoninu sem var á Humarhátíð enn til sýnis í fundarsal Nýheima og verða það út vikuna.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica