Útitónleikar með hljómsveitinni Jagúar
Jagúar er í tónleikaferð um landið í júlí og ætla sér að koma við á nokkrum vel völdum stöðum og þar á meðal Hornafirði. Tónleikarnir hjá þeim Jagúar mönnum verða 6 talsins og eru síðustu tónleikarnir í röðinni á Höfn þann 19. Júlí, eða næstkomandi sunnudag. Hefjast herlegheitin klukkan 17:00 á sunnudeginum og verða í Portinu á milli Nýheima og Ráðhússins. Ef illa viðrar verða tónleikarnir færðir inn í Nýheima. Hægt er að sjá hvar allir tónleikar sveitarinnar eru haldnir á vefsíðunni http://www.facebook.com/pages/Jaguar/83523705861



