Barnastarf
Í gær fórum við í heimsókn í Skinney Þinganes. Þar tók Kristín Ármannsdóttir á móti okkur og sýndi okkur alla humarvinnsluna. Krakkarnir fylgdust með hvernig humarinn er flokkaður og svo raðaður í öskju. Að lokum er humarinn frystur, pakkaður og seldur. Sumir gerðust meira að segja svo djarfir og smökkuðu humarinn hráan beint úr skelinni. Að lokum var farið í Akurey og nestið borðað í blíðunni.


