Menning
Kristinn Guðmundsson
Kristinn Guðmundsson

11.06.2009

Spennandi námskeið í sumar

Um miðjan júní byrjar hönnunar- og listanámskeið á vegum félagsmiðstöðvarinnar Miðgarðs og Menningarmiðstöðvar. Þetta námskeið er fyrir aldurshópana 14-16 ára og 17- 25 ára. Þetta verður kvöldnámskeið og verður haldið á Hafnarbraut 40, Miðgarði.

Á námskeiðinu fyrir yngri hópinn verður búið til listaverk fyrir sviðið á Humarhátíðinni.

Á námskeiðinu fyrir eldri hópinn verður sett upp sýning fyrir Humarhátíðina.

Eftir hátíðina verður farið í ljósmyndun, silkiþrykk, stop motion, skúlptúr og listmálun. Einnig verður fjallað um listamenn og stefnur og fjallað um áhugaverða og skemmtilega listamenn, með video kvöldum og komið með bækur til að glugga í.

Leiðbeinandi og skipuleggjandi námskeiðsins heitir Kristinn Guðmundsson (Bibbi) og er búinn að vera tengdur við visual list í að verða 6 ár, hann byrjaði á því að taka ljósmyndir og var að taka ljósmyndir í um 2 ár. Fluttist þá til Kaupmannahafnar þar sem hann stundaði nám við ljósmyndun í 2 ár. Eftir það sótti hann um í Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam þar stundar hann nám núna, og mun á næsta ári fara í deild sem er kölluð VAV eða fyrrverandi hljóð og mynd deild (sem er deild með allt á milli himins og jarðar allt frá hljóði til myndar til gjörninga til innstillinga).
Hann hefur haldið eina einkasýningu og það var á síðasta ári í Keflavík það var sýningin
"Leiðin til Amsterdam" þar sem hann sýndi aðallega ljósmyndir, en líka teikningar og videoverk.

Þetta verður án vafa afar skemmtilegt og fræðandi námskeið og þeir sem hafa áhuga geta skráð á Bókasafninu í síma 470 8050.

Dagskrá má sjá hér: Fyrir eldri hóp,  fyrir yngri hóp.


Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica