Menning
Flensborgarkórinn
Flensborgarkórinn

22.05.2009

Vorboðinn ljúfi

Kór Flensborgarskóla í Hafnarfirði

 Tónleikar kórs Flensborgarskóla verða haldnir í Nýheimum, Höfn Hornafirði 27. maí n.k. og hefjast kl. 20:00.

Með vortónleikum þessum lýkur hefðbundnu vetrarstarfi ungmennanna í Kór Flensborgarskólans og hluti söngvara kveður kórinn um leið og þeir útskrifast frá skólanum.

Kór skólans hefur nú starfað samfleitt í 11 ár undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg og er allt áhugafólk um kórsöng hvatt til að mæta á tónleikana og kynnast af eigin raun því kraftmikla og metnaðarfulla starfi sem fram fer í Kór Flensborgarskólans.

Kórinn hefur notið mikilla vinsælda og uppselt hefur verið á alla tónleika hans í Hafnarfirði undanfarin ár.

 Efnisskráin er mjög fjölbreitt og við allra hæfi. Þar er að finna kórtónlist allt frá endurreisn til okkar tíma og verður m.a. flutt nýtt verk Hildiunnar Rúnarsdóttur tileinkað Kór Flensborgarskólans.

 Aðgangseyrir á tónleikana er krónur 1500 en 500 fyrir 15 ára og yngri. Gestir geta svo gætt sér á kaffi í hléi í boði kórfélaga.

 

Stjórnandi kórsins er eins og áður segir Hrafnhildur Blomsterberg

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica