Sýningin Þetta vilja börnin sjá!
Góð aðsókn
Sýningin Þetta vilja börnin sjá! myndir úr barnabókum sem komu út árið 2008 stóð yfir í 2 vikur. Á annað hundrað börn á öllum aldri komu að skoða sýninguna. Þau fengu góðar móttökur frá Bryndísi bókaverði sem leiddi þau í gegnum sýninguna og las fyrir þau úr bókunum og síðan áttu þau að finna myndina úr bókinni sem var lesin.
Þetta er í þriðja sinn sem sýningin er sett upp á vegum Menningarmiðstöðvarinnar en sýningin er farandsýning. Sýningin var fengin að láni frá Gerðubergi en kom til okkar frá Sögusetrinu á Hvolsvelli. Næst fer sýningin til Akureyrar þar sem hún verður sett upp í ágúst n.k.
Alls voru 23 listamenn sem áttu myndskreytingar á sýningunni í ár en þau voru: Ágúst Bjarnason, Áslaug Jónsdóttir , Bernd Ogrodnik , Birta Rós Sigurjónsdóttir, Björk Bjarkadóttir, Dagný Emma Magnúsdóttir, Daniel Pagan, Erla Sigurðardóttir, Eva Kristjánsdóttir,Freydís Kristjánsdóttir, Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, Hjördís Inga Ólafsdóttir, Jean Antoine Posocco, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, Kristín María Ingimarsdóttir, Lucas Monteban, Stephen Fairbairn, Milan Colovic , Natalie Coulam, Sigrún Eldjárn, R. Art Studio, Þórarinn Már Baldursson og Þórey Mjallhvít Heiðardóttir.
Myndskreytarnir kepptu til verðlauna sem kennd eru við Dimmalimm og hlaut Kristín Ragna Gunnarsdóttir Íslensku myndskreytiverðlaunin, 2008. Verðlaunin hlaut hún fyrir myndskreytingu á barnabókinni Örlög guðanna sem hún vann ásamt Ingunni Ásdísardóttur


