Menning
skalafell
skalafell
Mynd 1 af 2
1 2

27.04.2009

Skálafellsfeðgar unnu spurningakeppnina

Úrslit í spurningakeppni fyrirtækjanna réðust í gærkvöldi.

Yfir 100 manns mættu í Hafnarkirkju í gærkvöldi til að fylgjast með úrslitum í spurningakeppni fyrirtækjanna. Í undanúrslitum kepptu Ráðhúsið og Ásgarður annars vegar og Grunnskóli Hornafjarðar og Skálafell hins vegar.

Ráðhúsið og Skálafell kepptu síðan til úrslita. Þeir feðgar frá Skálafelli unnu keppnina með 4 stigum gegn 2 stigum Ráðhússins.

Listakonan Nanný (Rannveig Gunnlaugsdóttir) hefur hannað og búið til stórskemmtilegt listaverk sem nefnist „Hornafjarðarheilinn“ og var hann afhentur sem farandgripur en auk þess fengu þeir feðgar minni útgáfur af heilanum til eignar.

Spurningakeppnin hefur notið mikilla vinsælda í vetur og aldrei hafa verið færri en 100 manns að fylgjast með og fór fjöldinn mest í 140.

Keppnin hófst þann 8. mars. Alls byrjuðu 32 fyrirtæki og var keppninni dreift á 7kvöld. Upphaflega var keppnin haldin í ráðstefnusal Nýheima en vegna mikillar aðsóknar var ákveðið að flytja keppnina þaðan í Hafnarkirkju þar sem hún fór fram síðustu 4 skiptin og var henni sjónvarpað þaðan á hjúkrunarheimilið.  Ákveðið hefur verið að vera með keppni aftur á næsta ári.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar og Lionsklúbbur Hornafjarðar þakka öllum þátttakendum skemmtilega keppni og áhorfendum fyrir komuna.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica