Menning
thjodahatid
thjodahatid

22.04.2009

Þjóðahátíð og margt fleira í boði á sumardaginn fyrsta

 

Menningarmiðstöð Hornafjarðar  ásamt Rauðakrossdeild Hornafjarðar  standa  fyrir Þjóðahátíð í Nýheimum  á morgun,  sumardaginn fyrsta.  Í sveitarfélaginu býr fólk frá 19 löndum og hafa 10 ákveðið að taka þátt í hátíðinni en það eru:

Bosnía, Þýskaland, Sri Lanka, Færeyjar, Marokkó, Pólland, Holland, Tæland, Eþíópía og Ísland.

Á hátíðinni verður boðið upp á að hlusta á tónlist, skoða myndir og kort og sjá þjóðbúninga landanna og  smakka á mat.  Skjámyndakynning verður í fyrirlestrasalnum, Karlakórinn Jökull og Kvennakórinn syngja, Tónskólinn verður með atrið og  Jóhann Kristófer spilar á ukulele.

Hátíðin hefst kl. 13.00 og stendur til kl. 16.00.  Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur ókeypis.

Auk þess sem Þjóðahátíðin verður í Nýheimum verður nýja sundlaugin opnuð kl. 10.30 Slysavarnakonur verða með sína árlegu kaffisölu í Slysavarnahúsinu kl. 14.00-18.00 og Karlakórinn Jökull með vortónleika í Hafnarkirkju kl. 20.00.

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica