Karlakór Akureyrar-Geysir til Hafnar
Karlakór Akureyrar-Geysir heldur í söngferð um Austurland eftir páska og slæst þar í för með félögum sínum hér á Hornafirði og Héraði. Föstudaginn 17. apríl sameinast KAG og Karlakórinn Jökull og enda þeir daginn á tónleikum í Hafnarkirkju. Laugardaginn 18. apríl halda Akureyringarnir til Héraðs og sameinast þar Karlakórnum Drífanda og halda tónleika með þeim í Egilsstaðakirkju á laugardagskvöld. Þó langt sé á milli þessara þriggja karlakóra, landfræðilega séð, þá eiga þeir ýmislegt sameiginlegt. Til dæmis eru í Karlakór Akureyrar-Geysi, félagar sem bæði hafa sungið með Karlakórnum Drífanda og Karlakórnum Jökli.
Föstudaginn 17. apríl halda Karlakór Akureyrar-Geysir og Karlakórinn Jökull sameiginlega tónleikum í Hafnarkirkju.



