Menning
Spurningakeppni
Spurningakeppni
Unnið að undirbúningi fyrir keppnina.

07.04.2009

110 manns mættu til að fylgjast með keppninni

16 liða úrslit

Seinni hluti 16 liða spurningakeppninnar fór fram í Hafnarkirkju um síðustu helgi. Um 110 manns mættu til að fylgjast með og skemmtu sér konunglega í þessari sívinsælu keppni. Keppnin var einnig send út beint til Hjúkrunarheimilisins þar sem vistmenn og starfsfólk fylgdust með. Spyrlar voru Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson og Hákon Valdimarsson. Þau lið sem komust áfram voru: Erpur, Ásgarður, Skálafell og Ráðhúsið. Að aflokinni keppninni var dregið um liðin sem keppa saman í 8 liða úrslitum en þau fara fram sunnudaginn 19. apríl n.k. Þau lið sem voru dregin saman eru eftirfarandi:

Skálafell – Hótel Jökull

Ráðhúsið – FAS

Erpur – Grunnskóli Hornafjarðar

Ásgarður – Bókhald JGG

 

Lokakvöld keppninnar verður sunnudaginn 26. apríl.
 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica