Menning
Æfing á Eftir lífið
Æfing á Eftir lífið
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

19.03.2009

Leikhópur FAS frumsýnir "Eftir lífið"

 

Leikhópur Fas hefur undanfarið æft leikritið ,,Eftir lífið´´eftir Sigtrygg Magnason og verður frumsýningin laugardaginn 21.mars, er það Kristín Gestsdóttir sem leikstýrir. Þessi sýning er verkefni í samstarfi við Þjóðleik en það er samstarfsverkefni sem Þjóðleikhúsið stendur fyrir. Alls eru 13 leikhópar ungs fólks á Austurlandi sem taka þátt í  verkefninu sem endar með stórri leiklistarhátíð dagana 24.-25.og 26. apríl á Egilsstöðum og verður FAS leikhópurinn þar með sína sýningu.

Leikendur eru 10 og þetta er verkefni sem þau völdu sjálf og efni leikritsins er eins og nafnið bendir til um það sem tekur við eftir lífið. Leikendurnir eru á aldrinum 16- 20 ára og hafa öll nokkra reynslu í leiklistinni, hafa tekið þátt í sýningum á vegum FAS og  nokkur þeirra hafa tekið þátt í leikstarfi Lopa.

"Það er frábært að vinna með þessum krökkum" segir Kristín leikstjóri  "þau eru áhugasöm og okkur langaði að hafa sýninguna á nýjum stað en ekki í Mánagarði eða Sindrabæ s.s. byggja þessa sýningu upp frá grunni og voru þeir hjá Skinney Þinganesi svo vinsamlegir að lána okkur kaffistofuna í síldarsöltuninni í Óslandi. Þar eru krakkarnir búnir að setja upp svið, ljósabúnað og annað sem til þarf og þau sjá sjálf um það sem gera þarf".

Kristín tekur fram að þessi sýning er eingöngu á vegum FAS og ekki í samstarfi við neina aðra leikhópa eins og áður hefur verið.

Þetta er óvenjulegt verkefni og áhugavert í nýju staðarleikhúsi og því ættu sem flestir að styrkja þessa áhugasömu leikara með því að koma og sjá sýninguna þeirra.

 

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica