Menning
Dansað
Dansað

19.03.2009

Dans, dans, dans

Hann Jón Pétur úr Dansskóla Jóns Péturs og Köru mun bjóða Hornfirðingum upp á danskennslu í næstu viku í Mánagarði. Kennslan hefst þriðjudagskvöldið 24.mars klukkan 20:00 og er til 21:30. Kennslan er opin öllum þeim sem hafa áhuga á dansi og fólk á öllum stigum í dansinum getur komið og nýtt sér kennsluna, hvort sem þeir eru byrjendur eða lengra komnir. Danskvöldin verða þrjú talsins en þau verða 24.mars, 25.mars og 26.mars frá klukkan 20:00 til 21:30

Skemmtanagildið verður í fyrirrúmi og verða kenndir allskyns dansar, allt frá gömlu dönsunum yfir í tjútt. Ekki þarf að koma með dansfélaga með sér og hvert kvöld kostar aðeins 1000 krónur.

Skráning fer fram í síma 470 8050

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica