Söngbókin og sögurnar
Á föstudaginn 20. mars verður Gunnar Þórðarson með tónleika á Hótel Höfn. Gunnar þarf varla að kynna en hann er einn mesti melódíumeistara íslenskrar dægurtónlistar undanfarna rúma 4 áratugi. Hann er einn af stofnendum hljómsveitanna Hljóma, sem störfuðu frá árinu 1963-1969 og hljómsveitarinnar Trúbrot sem starfaði árin 1969-1973. 1998 var hann einn af stofnendum "Guitar Islandico".
Gunnar hefur samið yfir 600 lög og mun syngja og leika mörg af sínum þekktustu lögum með kassagítarinn einan að vopni. Hann krefst þess líka að gestir taki hressilega undir í söngnum og er það víst að þetta er skemmtun sem ekki er hægt að láta fram hjá sér fara!
Tónleikar þessir hafa fengið frábæra dóma en Gunnar er á tónleikaferð um landið. „Söngbókin og sögurnar“ er yfirskrift tónleikanna, en sagan bak við lögin hans fylgir gjarnan með flutningnum
Hér á eftir fylgja brot úr ritdómum frá tónleikum hans á Græna hattinum á Akureyri í lok febrúar.
„Ég held ég geti hiklaust sagt að hann hafi farið á kostum bæði í tónlistarflutningi og sögum á milli laga og hann átti fljótlega salinn.... andrúmsloftið létt og afslappað. Það er náttúrulega ekki heiglum hent að ætla sér að velja nokkur lög úr um 650 laga safni sem eftir hann liggur, en honum fórst það frábærlega úr hendi“
„Og ef ég gef frekari innsýn í það sem í boði var má nefna Vetrarsól, Þitt fyrsta bros, Lífsgleði, Ástarsæla, Borgarblús, Starlight, Heim í Búðardal, Gaggó Vest, Hrafninn, Harðsnúna Hanna að ógleymdum Bláu augun þín en þá stóð salurinn upp og allir sungu með...ógleymanlegt augnablik. Þá tók hann góða útgáfu af Tasco Tostada til minningar um Rúnar.“
„Persónulegur hlýr og notalegur flutningur Gunnars á þessum frábæru lögum fleytir þessu tónleikum sannarlega í hóp þeirra bestu sem ég hef séð og heyrt óralengi.“
Á Hótelinu er „Fóður og fjör“ helgi og er í boði spennandi matseðill á föstudagskvöldinu frá kl. 19 og eru tónleikarnir svo kl. 21.


