Menning
Hafnarrölt
Hafnarrölt

18.03.2009

Helgin framundan

Mikið um að vera

Mikið hefur verið um að vera í Hornfirsku menningarlífi í þessum mánuði og má þar nefna árlega Blúshátíð sem að heppnaðist einstaklega vel í ár og stóð Hornfirska skemmtifélagið sig mjög vel í skipulagningu þeirrar hátíðar. Enn eru þó nokkrir menningarviðburðir eftir í þessum mánuði en á föstudaginn fáum við Hornfirðingar Gunnar Þórðarson í heimsókn, en hann ætlar að halda tónleika á Hótel Höfn. Tónleikarnir byrja klukkan 21 og er aðgangseyririnn 1500 krónur. Ýmislegt annað er að gerast á hótelinu þessa helgi en þar er einnig Fóður og Fjör sem er  matarveisla þar sem lagt er áherslu á hráefni úr sýslunni. Fóður og Fjör er 5 rétta veisla og er samansafn af því besta sem að Hornfirðingar hafa upp á að bjóða og kostar 4.900 krónur.

Á laugardaginn stendur Menningarmiðstöðin svo fyrir  Mannlífssýningu í Nýheimum frá klukkan 13:00 – 16:00. Þar kynna félagasamtök í sveitafélaginu starfsemi sína fyrir gestum og gangandi. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem eru að leita sér að nýju áhugamáli og til að kynnast fjölbreyttu félags og tómstundastarfi sem í boði er í sveitafélaginu.  Hér að neðan má svo sjá dagskránna sem fram fer á sýningunni.

Hornafjarðardeild ferðaklúbbsins 4x4, bílasýning fyrir utan ráðhúsið klukkan 13:00 – 16:00

Unoriginal John, spilar  klukkan 13:30

Karlakórinn Jökull, söngur Klukkan 14:00

Hestamannafélagið Hornfirðingur, teymir undir klukkan 14:00-15:30

Gleðigjafar kór eldri borgara, söngur klukkan 14:30

Samkór Hornafjarðar, söngur klukkan 15:00

Allir velkomnir!

Á laugardaginn verður einnig Hafnarrölt en þá ætla verslanir á Höfn að vera með lengri opnunartíma, ásamt tilboðum. Veitingastaðir bæjarins ætla einnig að bjóða gestum og gangandi upp á allskyns tilboð og við hvetjum Hornfirðinga til að nýta sér tækifærið og rölta um bæinn sinn, staldra við í verslunum og fá sér gott í gogginn.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica