Eftir lífið
Leikhópur FAS frumsýnir 21. mars n.k. leikritið Eftir lífið eftir Sigtrygg Magnason í leikstjórn Kristínar G Gestsdóttur. Sýningin er í samstarfi við Þjóðleik en alls eru það 13 leikhópar ungs fólks á Austurlandi sem setja upp 14 mismunandi uppfærslur af þremur glænýjum íslenskum leikritum vorið 2009. Þjóðleikhúsið hefur frumkvæði að verkefninu.
Leikhópur FAS samanstendur af nemendum úr Framhaldsskóla Austur Skaftafellssýslu, en leikhópurinn var formlega stofnaður í september 2008. Áður hafa nemendur unnið í samstarfi við Leikfélag Hornafjaðar.
Sýningar fara fram í mötuneyti gömlu Síldarvinnslunnar í Óslandi. Það er útgerðarfyrirtækið Skinney Þinganes sem hefur lánað húsnæðið til félagsins. Einungis er hægt að taka um 40 áhorfendur á sýningu og vill leikhópurinn koma því á framfæri að ekki er hægt að hleypa áhorfendum inn í salinn eftir að sýning hefst. Sýningin er við allra hæfi en gæti reynst yngri áhorfendum torskilin.



