Menning
Dean Farrel
Dean Farrel
Dean Farrel

09.03.2009

Dean Farrell með tónleika, sögur og látbragð í Pakkhúsinu

 

Kontrabassa- og látbragðsleikarinn Dean Farrell verður með tónleika í Pakkhúsinu þann 10. mars nk. á vegum Listvinasjóðs og Tónlist fyrir alla.  Tónleikarnir eru stryktir af FÍH og FÍT.

Dean Farrell er Hornfirðingum að góðu kunnur en hann hefur áður  haldið tónleika í Pakkhúsinu.

Dean hefur getið sér orð víða um lönd fyrir óvenjulega og bráðskemmtilega tónleika/ kvöldskemmtanir þar sem hann nálgast sígilda tónlist og bókmenntir með afar sérstæðum og oft bráðfyndnum hætti án þess að slá nokkurn tíma af listrænum kröfum.

Á miðvikudeginum mun Dean verða með tónleika fyrir leik-og grunnskólabörn.

 

Efnisskrá:   “the dog show” 

(Efnisskrá í tónum og orðum, sumt á íslensku annað á ensku)

Valsar nr.1-6  eftir Domenico Dragonetti;

The Bear Song eftir Dean Ferrell  

The Hunting Song eftir Captain Tobias Hume

 “”DOG”  Poem by Lawrence Ferlinghetti, music by D. Ferrell

Hound dog  eftir Elvis Presley

 B.B. Wolf eftir  Jon Deak.

Stutt atriði á milli tónlistaratriðanna:

“True historical anecdotes about Dragonetti and his St. Bernard, Carlo” og fleiri örsögur

 

Lýsing: “40,000 years of Music, songs and texts relating to man´s two best friends- the bass and the dog.” Flytjandi vill gjarnan vera í hundaræktunarfélagið á staðnum!

Um Dragonetti: Domenico Dragonetti var einn frægasti kontrabassaleikari sögunnar, fæddur á Ítalíu en var lengi búsettur í London. Hann hafði mikil áhrif á tónlistarlífið á Englandi. Dragonetti var mjög skrautlegur karakter, mikil prímadonna og með ákaflega mikla söfnunaráráttu.

Tónleikarnir hefjast kl. 20.30   Aðgangseyrir er kr. 1.000.- frítt fyrir nemendur Tónskólans

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica