Frítt inn á Norðurljósablús 2009
Blúshátíðin Norðurljósablús verður haldin í fjórða sinn á Höfn í Hornafirði dagana 5. til 7. mars næstkomandi. Það hefur sjaldan verið meiri blús í íslensku samfélagi en einmitt um þessar mundir. Fólk hefur í gegn um árin notað blúsinn til að syngja sig frá erfiðleikunum og gleyma stað og stund í tónlistinni og þannig verður það á Norðurljósablús. Til þess að gefa sem allra flestum tækifæri á að finna blústaktinn í hjartanu verður frítt inn á alla tónleika hátíðarinnar.
Blúsað um allan bæ
Aðal tónleikarnir hvert kvöld hátíðarinnar verða á Hótel Höfn. Eftir þá verða blústónleikar samtímis á þremur stöðum í bænum, Hótel Höfn, Kaffi Horninu og Veitingahúsinu Víkinni. Auk þess munu feðgarnir Mugison og Papa Mug skemmta matargestum á Humarhöfninni. Á föstudaginn mun Mugison heimsækja grunnskólabörn á Höfn og kynna tónlistina sína fyrir þeim. Á sunnudaginn verður blúsmessa í Hafnarkirkju þar sem Rökkurbandið mun sjá um tónlistina.
32 blúsmenn og konur í níu hljómsveitum
Sveitirnar sem koma fram á hátíðinni eru B-Sig frá Reykjavík, Guðgeir Björnsson ásamt hljómsveit frá Egilsstöðum, Pitchfork Rebellion frá Húsavík og Vax frá Egilsstöðum. Tvö hornfirsk bönd leika á hátíðinni, Mæðusveitin Sigurbjörn og Hulda Rós og rökkurbandið. Einnig kemur saman á ný-gamalt húsband úr Sindrabæ frá 1968 og leikur á hátíðinni og kalla þeir sig Blúsvíkingana. Þar eru gömlu kempurnar Sæmi Harðar, Óskar Guðna og Raggi Meysa auk unglinganna Bjössa Gylfa og Bjössa Viðars. Þá eru ótaldir feðgarnir Guðmundur og Örn Elías sem betur eru þekktir sem Mugison og Papa Mug. Að sjálfsögðu verður blúsdjamm á hátíðinni þar sem allir geta fengið að taka í hljóðfæri eða syngja og oft hefur myndast einstök djamm stemmning á Norðurljósablús.
Hornfirska skemmtifélagið
Hornfirska skemmtifélagið hefur veg og vanda að Norðurljósablús í samstarfi við veitingamenn og ferðaþjónustufólk á Hornafirði. Félagið hefur hlotið Menningarverðlaun Hornafjarðar og er styrkt frá Menningarráði Austurlands. Önnur verkefni Skemmtifélagsins eru að standa fyrir tónlistardagskrá á haustmánuðum ár hvert og þar eru það hornfirskir skemmtikraftar sem stíga á stokk. Hornfirska skemmtifélagi er einn af stofnendum Ferðaþjónustuklasa Hornafjarðar, Ríki Vatnajökuls ehf.
DAGSKRÁ
FIMMTUDAGUR 5. MARS
Hótel Höfn
Kl. 21-23: Guðgeir Björnsson
FÖSTUDAGUR 6. MARS
Humarhöfnin
kl. 18-21: Mugison og Papa Mug skemmta matargestum
Hótel Höfn
Kl. 21-23: B-Sig.
Kl. 23-01: Mæðusveitin Sigurbjörn
Kaffi Hornið
Kl 23-01: Blúsvíkingarnir
Víkin
Kl. 21-03: Dansleikur með hljómsveitinni Silfur
LAUGARDAGUR 7. MARS
Nýheimar
Kl. 15-18 Blúsdjamm. Allir velkomnir að spila með
Hótel Höfn
Kl. 21-23: Hulda Rós og Rökkurbandið.
Kl. 23-01: Hornafjarðar All Star Blues Jam
Kaffi Hornið
Kl. 23-01: Pitchfork Rebellion
Víkin
Kl. 23-01: VAX
SUNNUDAGUR 8. MARS
Hafnarkirkja
Kl. 11:00: Blúsmessa. Rökkurbandið leikur.


