Spurningakeppni fyrirtækjanna
Grein
Fréttatilkynning:
Fyrir nokkuð mörgum árum síðan var Lionsklúbbur Hornafjarðar með spurningakeppni sem þeir kölluðu „Fyrirtækin svara“ . Í lok síðasta árs kom tillaga frá menningar-og tómstundanefnd um að endurverkja þessa keppni og hefur nú Lionsklúbburinn í samvinnu við Menningarmiðstöð ákveðið að standa fyrir spurningakeppni fyrirtækja næstu sunnudagskvöld. Undirbúningur hófst í lok janúar og var fyrirtækjum sent bréf til kynningar á keppninni. Þátttaka var síðan könnuð með því að hringt var í fyrirtækin. Undirtektir voru frábærar og skráðu 32 lið sig til leiks. Sum fyrirtækjanna eru með fleiri en eitt lið.
Nokkrir aðilar koma að því að semja spurningarnar en þeir eru meðal annarra. Ásdís Marteinsdóttir, Hákon Valdimarsson og Sigurður Hannesson
Miðvikudaginn 25. febrúar komu saman Sigurður Kr. Sigurðsson, Guðrún Jónsdóttir, Sigurður Hannesson og Bryndís Hólmarsdóttir til að draga um hvaða lið keppa saman.
Eftirtalin lið keppa þann 8. mars n.k.
Fasteignasalan Inni – Afl starfsgreinafélag
Ráðhús - Hafnarkirkja
Erpur ehf – Mikael ehf
FAS – Nettó
Hótel Jökull – Húsasmiðjan
Bókhaldsstofan ehf – Hótel Höfn lið 1
15. mars keppa:
HSSA-lið 2 –Hótel Höfn lið 2
Búnaðarsamband A-Sk. –Hótel Höfn lið 3
Félagsmiðstöðin Þrykkjan – Vélsmiðja Hornafjarðar
Ferðaþjónustan Smyrlabjörgum –Regula lögmannsstofa
Matís – Bókhald JGG
22. mars keppa:
Háskólasetrið – Ferðaþjónustan Skálafelli
Málningarþjónustan –Grunnskóli Hornafjarðar
Náttúruleg þekking – HSSA lið 1
N1 Vesturbraut – Sporthöllin
Norðurbragð - Gistiheimilið Ásgarður
Þegar þessari umferð er lokið standa eftir 16 lið og verður þá aftur dregið um hverjir keppa saman sunnudagana 29. mars og 5. apríl. Þá eru eftir 8 lið sem keppa þann 19. apríl og úrslitakeppnin verður síðan haldin 26. apríl en þá keppa 4 lið til úrslita.
Keppnin fer fram í ráðstefnusal Nýheima á sunnudagskvöldum og hefst kl. 20.00.
Aðgangur er ókeypis.
Allir hjartanlega velkomnir



