Menning
Dr. Spock
Dr. Spock
Mynd 2 af 5
1 2 3 4 5

24.02.2009

Samféshátíð – Ferðasaga

Síðastliðinn föstudag lögðu 25 unglingar ásamt undirritaðri og Jóhanni Bergi af stað á Samféshátíð. Það var mikil eftirvænting í loftinu og mikið sungið á leiðinni. Við komum á gististað, sem var félagsmiðstöð í Kópavogi, uppúr þrjú og þá var strax farið í það að hafa sig til fyrir ball. Flestir skemmtu sér vel á balli þar sem komu fram fjórar unglingahljómsveitir, Veðurguðirnir, Dr. Spock, Bloodgroup og hápunkturinn Páll Óskar.

 

Á laugardeginum var vaknað snemma til að fara í Kringluna, sem er náttúrulega ómissandi fyrir okkur landsbyggðarfólkið. Kl. 13:00 hófst svo söngvakeppnin og má segja að það hafi verið mikil spenna hjá okkar keppendum. Bjarni Friðrik Garðarsson keppti fyrir okkar hönd með frumsamið lag, Don´t leave me alone, eftir hann sjálfan og honum til fulltingis voru Halldór Karl Þórsson á bassa og Reynir Ásgeirsson á trommur. Drengirnir okkar stóðu sig alveg svakalega vel en þetta var mjög hörð keppni, greinilegt að það er mikið af efnilegum söngvurum hér á landi, og fór félagsmiðstöðin Ársel með sigur af hólmi. Það er hægt að sjá keppnina í heild sinni á eftirfarandi hlekk.

Strax eftir keppni var haldið af stað heim og voru það þreyttir en sáttir unglingar sem komu heim um ellefuleytið á laugardagskvöldið.

Unglingarnir okkar voru til fyrirmyndar og viljum við starfsmennirnir þakka kærlega fyrir skemmtilega ferð!

Helga Rún

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica