Menning
Ljósmyndari að störfum
Ljósmyndari að störfum
Mynd 1 af 3
1 2 3

17.02.2009

Opnun áhugamannaljósmyndasýningar

Áhugamannaljósmyndasýning var opnuð í Pakkhúsinu á laugardaginn var. Heimamenn fjölmenntu á opnunina enda voru um 39 ljósmyndarar sem sendu inn myndir á sýninguna.  Ekkert sérstakt þema var í gangi, né aldurstakmark, svo að myndirnar eru mjög fjölbreytilegar. Þess má geta að yngsti ljósmyndarinn sem sendi inn mynd er einungis 5 ára. Sigurður Mar ljósmyndari hjálpaði til við valið á myndunum, en þátttakendur voru mjög duglegir að senda inn því rúmlega 400 myndir voru komnar þegar skilafrestur rann út 30. janúar. Allir þeir sem taka þátt eiga hið minnsta 2 myndir á sýningunni en 340 urðu fyrir valinu. 27 myndir  voru hengdar upp í ramma en hinum 313 myndunum er varpað upp með skjávarpa.  Sýningin verður opin næstu 3 vikurnar svo að Hornfirðingar hafa næg tækifæri til að koma og skoða sýninguna.

Miðvikudaginn 18. febrúar verður sýningin opin frá 20-22 og eru allir velkomnir að kíkja við og skoða myndirnar, heitt verður á könnunni.

Fimmtudaginn 19. febrúar verður svo kaffihúsakvöld í Pakkhúsinu þar sem að sýningin verður formlega opnuð og boðið verður upp á léttar veitingar. Húsið opnar klukkan 20:00.

Áhugamannaljósmyndasýningin verður opin eins og hér segir:

Miðvikudagurinn 18. febrúar klukkan 20-22

Fimmtudagurinn 19. febrúar klukkan 20 KAFFIHÚSAKVÖLD

Laugardagurinn 21. febrúar klukkan 14-16

Sunnudagurinn 22. febrúar klukkan 14-16

Fimmtudagurinn 26. febrúar klukkan 20-22

Laugardagurinn 28. febrúar klukkan 14-16

Sunnudagurinn 1. mars klukkan 14-16

Miðvikudagurinn 4. mars klukkan 14-16

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica