Menning
Þorrablót
Þorrablót
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

15.02.2009

Þrykkjan fær Hafnarbraut 40

 

Iðnaðarmenn eru að ljúka við breytingar og endurbætur á húsinu Hafnarbraut 40 sem Sveitarfélagið hefur keypt en þar verður Þrykkjan félagsmiðstöð fyrir unglinga í 6.-10. bekk grunnskólans til húsa. Veggir voru fjarlægðir  og  nú eru tvö stór rými á neðri hæð ásamt  vinnuherbergi og skrifstofa umsjónarmanns. Á efri hæð verður setustofa og fundaraðstaða  sem hvoru tveggja er einkum ætlað  ungmennum  á aldrinum 16-25 ára.Helga Rún Guðjónsdóttir umsjónarmaður Þrykkjunar  á von á að þau geti flutt í þetta glæsilega húsnæði um næstu helgi.

Þetta verður alveg meiriháttar flott aðstaða og er allt eins og best hentar fyrir starfsemi Þrykkjunnar segir Helga Rún. Öðru megin í húsinu verður svona ,,dótasalur´´ með ýmsum leiktækjum  en hinumegin setustofa og vinnustofa, þar verður klúbbstarfsemi ýmiskonar svo sem blaðaklúbbur  og jafnvel kvikmyndaklúbbur þar sem gerð yrði stuttmynd. Inn af vinuherberginu verður skrifstofa Helgu Rúnar  og þar verður hún einnig  til staðar í hádeginu  þannig að krakkarnir geti litið inn ef þau hafa tíma.

Reynt verður að hafa sem mesta og fjölbreyttasta starfsemi í húsinu fylla það af lífi og áhugamálum og ná til allra þessara aldurshópa og eins til þeirra eldri sem fá aðstöðuna á efri hæðinni. Búið er að virkja unglingaráð sem í eru krakkar  úr grunnskólanum, þar er formaður nemendafélagsins, Þrykkjuráðs, FAS, aðili frá Sindra, stelpa frá björgunarsveitinni  og einn sem er á vinnumarkaðinum.  Við ætlum að virkja þau líka segir Helga Rún, fá þau í lið með okkur og koma með hugmyndir og við viljum að krakkarnir ákveði sjálfir hvað gerist í húsinu og eigi frumkvæði að starfseminni.

Þetta hús býður upp á svo mikla möguleika t.d. fyrir ýmsar  sýningar s.s. málverkasýningar, ljósmyndasýningar svo eitthvað sé nefnt. Áætlað er að hafa graff-keppni þar sem þau gera lógó Þrykkjunnar og vinna það á einn vegginn eins keppni um  slagorð fyrir húsið.

Í lokin segir Helga Rún ,,Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur og að fá svona fínt hús, það er toppurinn.Við höldum ótrauð áfram og látum ekki hindra okkur þó á móti blási og erfiðir tímar séu framundan í samfélaginu´´.

 

 

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica