Menning
Hornfirskt grúv
Hornfirskt grúv
Hornfirskt grúv

10.02.2009

Hornfirsk tónlistarveisla í Nýheimum

Fimmudagskvöldið 12. febrúar

Útskriftarnemar FAS 2009 hafa tekið sig saman og komið sér í samband við ýmsa hornfirska tónlistarmenn, unga sem aldna, allt frá klassískum söngvurum og harmonikkusnillingum til hörðustu rokkbanda bæjarins. Allir þeir sem við báðum um að leggja okkur lið voru afar jákvæðir og mun allt það fólk sem sá sér fært að vera með, koma saman fimmtudagskvöldið 12. febrúar í Nýheimum. Meðal flytjanda er dúettinn „Don't jugde us by our music", metalbandið „Antares", sönghópurinn „Stakir Jakar", hljóðfæraleikarar úr Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu, hljómsveitin „Unoriginal Jon", sem og ungir söngvarar sem tóku þátt í Söngkeppni Þrykkjunnar fyrr í vetur ásamt fleiri góðum gestum.

Húsið mun opna kl. 20.00 og munu tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
Aðgangseyrir eru 1000 kr og eru léttar veitingar innifaldar.

Stefna útskriftarnemar FAS 2009 á að fara til Ibiza í útskriftarferð þrátt fyrir kreppuna miklu og rennur aðgöngueyrir til þessa.

Vonumst við til að sem flestir sjái sér fært að mæta og styðja okkur, en það sem undirritaðri þykir þó mikilvægara er að bæjarbúar sjái hversu Höfn iðar af tónlistarlífi og hvað við eigum mikið af tónlistarfólki sem við getum verið stolt af.

Fyrir hönd útskriftarhóps FAS 2009
Nanna Imsland

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica