Hermann Hansson hlaut Menningarverðlaunin
Föstudaginn 6. febrúar fór fram afhending Menningarverðlauna fyrir árið 2008.
Athöfnin fór fram í Nýheimum að viðstöddu fjölmenni. Bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson bauð gesti velkomna. Að því loknu tók við dagskrá með tónlistaratriðum og afhendingu styrkja. Hljómsveitin Unorigal Jon sá um tónlistaratriði en hljómsveitina skipa þeir Sigurður Páll Árnason, Jón Karl Jónsson, Eymundur Ragnarsson og Rögnvaldur Reynisson.
Menningarverðlaunin hlaut Hermann Hansson fyrir áralangt starf að menningarmálum og vel heppnaðar endurbætur á Kaupfélagshúsinu. Fram kom í máli formanns menningar- og tómstundanefndar að eftir að nefndin hefði farið yfir og metið tilnefningar hafi verið einróma niðurstaða að veita þau Hermanni Hanssyni en hann hefur beitt sér fyrir varðveislu menningarverðmæta í víðum skilningi og jafnan fylgt málum eftir af festu og röggsemi. Hann hefur haft víðsýni að leiðarljósi og skilið að mikilvægt er að líta til fortíðar þegar haldið er fram á veginn.
Hermann þakkaði þann heiður sem honum væri sýndur með tilnefningunni og sagði það satt að segja koma sér á óvart. Honum þætti hins vegar meira til koma að þeir aðstandendur Kaupfélagshússins hafi orðið fyrir valinu við veitingu Menningarverðlaunanna. Hann rakti síðan sögu hússins, en það er eins og kunnugt er elsta íbúðarhúsið á Höfn, byggt árið 1897. Þegar ljóst var árið 2005 að eigendaskipti yrðu á húsinu þótti honum óbærileg tilhugsun ef einhver aðili utanhéraðs yrði eigandi þess. Stofnað var einkahlutafélag um kaupin og heitir félagið Kaupfélagshúsið ehf og eru hluthafarnir 9. Markmiðið með kaupum á húsinu voru tvenns konar. Annars vegar að tryggja að heimaaðilar ættu húsið og hins vegar að vinna að endurbótum og varðveislu þannig að sómi yrði að fyrir byggðina. Þessum markmiðum hefur nú verið náð.
Styrkir voru afhentir frá bæjarráði, skólanefnd, menningar-og tómstundanefnd og auk þess voru að þessu sinni einnig afhentir styrkir út atvinnu-og rannsóknarsjóði. Markmið sjóðsins er að efla byggð og atvinnu í sveitarfélaginu með því að veita styrki til verkefna sem lúta að atvinnuþróun og nýsköpun í sveitarfélaginu. Þeir sem lögheimili hafa eða reka atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu hafa alla jafnan forgang að úthlutun.
Formaður bæjarráðs Árni Rúnar Þorvaldsson afhenti eftirfarandi styrki frá bæjarráði:
1. Björgunarfélag Hornafjarðar til starfsemi björgunarsveitarinnar
2. Björgunarskipið Ingibjörg til rekstrar björgunarskipsins
3. Björgunarsveitin Kári til starfsemi björgunarsveitarinnar
4. Félag eldri Hornfirðinga til starfsemi félagsins
5. Félagsstarf eldir borgara í Öræfum til félagsstarfs aldraðra í Öræfum
6. Fornleifafræðistofan til fornleifauppgraftrar að Bæ í Öræfum og Hólmi í Nesjum
7. Hafnarkirkja (hljóð og útsendingarkerfi) til kaupa á hljóð-og útsendingakerfi í Hafnarkirkju
8. Landgræðsla ríkisins til verkefnisins „Bændur græða landið“
9. Legóhópurinn Klakarnir til keppnisferðar til Kaupmannahafnar
10. Skógræktarfélag Austur-Skaftafellssýslu til starfseminnar og aðalfundar Skógræktarfélags Íslands á Höfn 28.-30. ágúst 2009
Elín Magnúsdóttir formaður skólanefndar afhenti eftirfarandi styrki skólanefndar:
1. Umf. Sindri til almenns rekstrar, þróunar íþrótta- og æskulýðsstarfs, reiknaðrar húsaleigu íþróttahússins á Höfn, leikjanámskeiðs og sunddeildar
2. Umf. Máni til íþróttastarfsemi og reiknaðrar húsaleigu í Mánagarði
3. Golfklúbbur Hornafjarðar til barna-og unglingastarfs og framkvæmdasamnings
4. Hestamannafélagið Hornfirðingur til barna-og unglingastarfs og framkvæmdasamnings
Reynir Arnarson forseti bæjarstjórnar afhenti eftirfarandi styrki úr atvinnu-og rannsóknarsjóði:
Árdís Halldórsdóttir Höfn Höfn - Þéttbýlið við Þjóðgarðinn
Ferðaþjónustan Hoffelli Heilsulindir í Hoffelli
Ferðaþjónustan í Hólmi Húsdýragarður í Hólmi á Mýrum
Fjöruferðir Uppbygging Fólkvangs á Melatanga
Fuglaathugunarstöð Suðausturlands Álftarannsóknir í Austur-Skaftafellssýslu
Handraðinn Hönnun á prjónamunstri
Hanna Jónsdóttir My precious
Háskólasetrið á Hornafirði Þróun fuglaferðaþjónustu í Ríki Vatnajökuls
Hjalti Egilsson Gerð viðskiptaáætlunar um framleiðslu áfengis úr úrgangskartöflum
Humarhöfnin Saga humarveiða- og vinnslu á Hornafirði
Matthildur Ásmundardóttir Heilsuefling
Ríki Vatnajökuls Fjallamenning Þróun á fjallaferðaþjónustu og fjallamenningu í Ríki Vatnajökuls
Skaftafellsstofa Víkingar af lífi og sál
Skaftafellsstofa Líf og störf í Öræfum á síðustu öld
Verkefnahópur um söguslóðaverkefnið Söguslóð á suðausturlandi
Þórbergssetur Efling starfsemi og frekari uppbygging s sýninga í Þórbergssetri
Eyþór Sigurðsson Nýjar afurðir úr bleikju til smásölu
Finndís Harðardóttir Frostþurrkaðar kryddjurtir frá Dilksnesi
Gísli Karl Ágústsson Lúra
Eiríkur Egilsson Nautakjötsafurðir beint frá Seljavöllum
Hornfirska álafélagið Heitreyking á ál
Hólabrekkuafurðir Sýrt grænmeti frá Hólabrekku
Humarhöfnin Framleiðsla á humarsoði og þróun afurða í neytendapakkningar
Ingólfur Einarsson Framleiðsla á rauðlauk fyrir neytendamarkað
Ísen ehf. Heitreyktar andabringur
Kokkur Humarsoð til smásölu
Sæmundur Jón Jónsson Ísframleiðsla
Sævar Kristinn Jónsson Fullvinnsla svínakjöts frá vistvænu búi
Þokulamb/Laufey Helgadóttir Framleiðsla á gröfnu lambakjöti
Þrúðmar Þrúðmarsson Fullvinnsla hrossa- og folaldakjöts að Hoffelli
Guðrún Ingimundardóttir, formaður menningar-og tómstundarnefndar afhenti eftirfarandi styrki nefndarinnar.
1. Gleðigjafar – kór aldraðra
2. Glófaxi
3. Harmóníkufélag Hornafjarðar
4. Hlynur Pálmason,
5. Hornfirska skemmtifélagið
6. Karlakórinn Jökull
7. Kvennakór Hornafjarðar
8. Leikfélag Hornafjarðar
9. Leikhópurinn Lopi
10. Listvinasjóður
11. Lúðrasveit Hornafjarðar
12. Magnús J. Magnússon
13. Pálína Þorsteinsdóttir og bræður
14. Samkór Hornafjaðrar
Þá var komið að útnefningu til Menningarverðlauna Hornafjarðar 2008. Menningarverðlaun hafa verið veitt frá 1994. Auglýst var eftir tilnefningum og voru eftirtaldir tilnefndir:
Eigendur Kaupfélagshússins, vegna vel heppnaðra endurbóta á Kaupfélagshúsinu
Eiríkur Hansson, fyrir starf sitt með Legóhópnum
Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson tónlistarkennari fyrir öflugt tónlistarstarf til margra ára.
Hermann Hansson, fyrir áralangt starf að menningarmálum og vel heppnaðar endurbætur á Kaupfélagshúsinu
Hlynur Pálmason, kvikmyndagerðarmaður, fyrir gerð stuttmynda, ljósmynda og hreyfimyndasýningar.
Jóhann Morávek, fyrir óeigingjarnt starf við uppbyggingu tónlistarlífs
Karlakórinn Jökull, fyrir öflugt starf í 35 ár.
Kvennakór Hornafjarðar, fyrir Landsmót kvennakóra á Höfn vorið 2008
Menningarverðlaunin hlaut Hermann Hansson fyrir áralangt starf að menningarmálum og vel heppnaðar endurbætur á Kaupfélagshúsinu.



