Afhending Menningarverðlauna og styrkja
Í febrúar ár hvert fer fram afhending styrkja menningar-og tómstundanefndar, bæjarráðs, atvinnumálanefndar og skólanefndar. Einnig verður á sama tíma afhending menningarverðlauna.
Menningarverðlaun Sveitarfélagsins hafa verið veitt árlega frá 1995. Auglýst er eftir tilnefningum ásamt rökstuðningi og hafa allir íbúar sveitarfélagsins rétt til að taka þátt. Tilnefningarnar berast menningar-og tómstundanefnd sem fer yfir þær og leitast við að komast að einróma niðurstöðu. Heimilt er að veita fleirum en einum aðila menningarverðlaun, telji nefndin að fleiri en einn hafi skarað framúr og þannig verðskuldað verðlaunin.
Verðlaunin eru í formi heiðursskjals sem formaður nefndarinnar undirritar og eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári.
Markmið verðlaunanna er að vera almenn hvatning og viðurkenning til eflingar menningar-og listastarfs í sveitarfélaginu.
Þeir sem hlotið hafa menningarverðlaun Hornafjarðar frá upphafi:
Leikfélag Hornafjarðar 1994
Karlakórinn Jökull 1995
Magnús J. Magnússon 1996
Arnþór Gunnarsson 1997
Guðlaug Hestnes 1998
Albert Eymundsson 1999
Barnakór Hornafjarðar 2000
Jóhann Morávek 2001
Gláma-Kím – Árni Kjartansson 2002
Haukur H. Þorvaldsson 2003
Gísli Sverrir Árnason 2004
Nemendafélag FAS 2005
Hornfirska skemmtifélagið og Þórbergssetur 2006
Jack D. Ives 2007
Afhending styrkja og menningarverðlauna fer fram í Nýheimum þann 6. febrúar n.k. kl. 16.00
Allir eru hjartanlega velkomnir.



