Hornfirðingar í Gettu betur í kvöld á Rás 2
Spurningakeppni framhaldsskólanna
Þá er komið að spurningakeppni framhaldskólanna Gettu betur. Hún fer fram í kvöld, miðvikudaginn 14. janúar klukkan 20:00 á Rás 2. Lið Hornfirðinga skipa þeir Björn Ármann, Einar Björn og Freyr. Hornfirðinga eru hvattir til að mæta og sjá viskuna flæða úr munnum þeirra en hægt verður að hvetja drengina í fundarsal Nýheima í kvöld. Ef að fólk kemst ekki í Nýheima þá er bara um að gera að stilla á Rás 2 og styðja strákana í gegnum útvarpið!



