Tónleikar í Nýheimum
Tónleikar verða haldnir á Höfn í Hornafirði sunnudaginn 7. september 2003, kl. 16:00 í Nýheimum. Þar koma fram listamennirnir Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran, Einar Jóhannesson, klarínettuleikari og Valgerður Andrésdóttir, píanóleikari og flytja þau verk m.a. eftir Atla Heimir Sveinsson, Jón Ásgeirsson, Mozart, Puccini, McCabe og Gershwin.
Þau héldu sína fyrstu tónleika í Sigurjónssafni á haustmánuðum 2001 en verða með tónleika í Salnum í Kópavogi í febrúar á næsta ári.
Tónleikar þessir eru á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í samstarfi við Félag íslenskra tónlistarmanna.



