Jólasveinar í Gömlubúð
Á sunnudaginn síðasta komu kátir sveinar í heimsókn í Gömlubúð, en það voru þeir Gluggagægir, Kjötkrókur og Kertasníkir. Þegar börnin komu í Gömlubúð var jólasveinana hvergi að finna, svo að börnin brugðu á það ráð að leita að jólasveinunum í nágrenninu. Þeir fundust svo stuttu seinna í Sílavík, en þeir höfðu ákveðið að stríða krökkunum aðeins og fela sig fyrir þeim, enda vissu þeir að krakkarnir myndu leita að þeim. Jólasveinarnir skoðuðu svo safnið með börnunum þegar til baka var komið og svo var brugðið á leik, þar sem að krakkarnir kenndu jólasveinunum til dæmis að spila á spil. Svo var sungið og spilað á harmonikku. Um 80 börn og aðstandendur mættu til að hitta jólasveinana og það var mikið fjör.


