Hornfirðingar gera betur!
Um daginn skrifaði ég lítinn pistil sem ég kallaði Hornfirðingar - heimabyggðin býður betur þar sem Hornfirðingum var bent á alla þá fjölbreyttu viðburði sem biðu þeirra fyrstu helgina í desember. Þátttaka Hornfirðinga sló öll met þessa helgi og ástæða til að segja í dag eftir þessa viðburðaríku helgi að Hornfirðingar gera betur!. Allir viðburðir voru vel sóttir, veitingahúsin buðu sínar bestu kræsingar og auk Hornfirðinga kom hópur gesta kom um langan veg, naut viðburðanna og góðs matar.
Rithöfundakynningin var vel sótt á miðvikudagskvöld og þeir sem lögðu leið sína í Pakkhúsið áttu ánægjulega kvöldstund yfir kaffi, piparkökum og upplestri úr góðum bókum. Á fimmtudaginn lásu höfundar fyrir gesti Nýheima, heimsóttu skóla og hjúkrunarheimili og þátttakan kom þeim sjálfum ánægjulega á óvart.
Á föstudag tóku Nýheimar á móti gestum og gangandi þar sem boðið var í klasakaffi - en þar hittast "íbúar" hússins og ræða málin, skiptast á skoðunum og láta stöku brandara flakka. Þeir Andri og Bragi spiluðu jólalög á harmoníkurnar sínar og starfsemi Nýheima var kynnt í fyrirlestrarsalnum.
Á föstudagskvöld voru svo stórtónleikar í Íþróttahúsinu þar sem Frostrósir ásamt hljómsveit, barnakór og strengjakvartett fluttu dagskrá sína. Hornfirðingar fjölmenntu á tónleikana, gestir komu frá nágrannabyggðum og var mikil og góð stemming í Íþróttahúsinu. Undirbúningur tónleikanna var í höndum Menningarmiðstöðvar og vil ég þakka samstarfsfólki mínu fyrir samstarfið og þá miklu vinnu sem allir lögðum á sig til að hægt væri að halda þessa tónleika. Ég vil líka þakka félögum úr Karlakórnum Jökli og Valdemar Einarssyni frá Sindra en þeir hjálpuðu okkur við undirbúning tónleikanna og frágang Íþróttahússins. Eins vil ég þakka starfsmönnum Íþróttahússins fyrir gott samstarf. Það er ómetanlegt að eiga góða að og viðburðir eins og þeir sem við höfum staðið fyrir í Íþróttahúsinu í upphafi vetrar, tónleikar Sinfóníuhljómsveitar og Frostrósartónleikar, verða ekki að veruleika án hjálpar og samstarfs og þar hefur ekkert skort á.
Á laugardag var Markaðsdagurinn haldinn í Miðbæ og Nýheimum auk þess sem fjölmargar verslanir voru með ýmis tilboð í tilefni dagsins og opið frameftir degi. Mikill fjöldi lagði leið sína í verslanir bæjarins og þarf ekki að tíunda hvað var á boðstólum en ljóst að ef einhverjir slógu í gegn þá voru það Legókrakkarnir sem sýndu þrautina sína, seldu miða á tombólu og fluttu tónlistaratriði. Hér í Nýheimum reiknast okkur til að um 1.000 manns hafi lagt leið sína hingað frá morgni og fram til klukkan 16:00 og ánægjulegt að sjá hversu vel Hornfirðingar og gestir tóku þátt í þessum degi.
Í gær, sunnudag var svo kveikt á ljósum jólatrésins og var það hátíðleg stund, ræðuhöld, tónlistaratriði og svo sungu leikskólakrakkarnir jólalög og augljóst að þar er tónlistarfólk framtíðarinnar á ferð. Um kvöldið var svo aðventukvöld í kirkjunni og áttu gestir þar hátíðlega stund með söng Samkórsins og krakka úr 4. bekk, auk þess sem nemendur í Tónskólanum fluttu gestum ljúfa tóna.
Enn og aftur takk fyrir frábært samstarf og Hornfirðingar takk fyrir frábæra þátttöku - þið gerðuð svo sannarlega betur!
Björg Erlingsdóttir
forstöðumaður
Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar



