Menning
Markadsdagur 2007
Markadsdagur 2007
Markadsdagur 2007
Mynd 3 af 3
1 2 3

04.12.2008

Stefnir í metþátttöku á jólamarkaðnum

Laugardaginn 6. desember verður 22. markaður Markaðstorgs Hornafjarðar haldinn í Miðbæ og Nýheimum. Allt stefnir í metaðsókn en nú þegar hafa 40 aðilar skráð sig til þátttöku og verða efri hæð Nýheima ásamt Bókasafni einnig nýtt fyrir söluborð að þessu sinni.
Lokað verður fyrir umferð bíla á milli Miðbæjar og Nýheima meðan á markaði stendur.
Mikið úrval af matvöru úr matarkistunni Hornafirði verður til sölu s.s. jólaendur, svínakjöt, reyktur áll, jöklableikja, kartöflur og annað grænmeti, alls kyns fiskmeti og bakkelsi svo eitthvað sé nefnt.
Handverksfólk mun selja úrval listmuna úr tré, gleri, leir og garni en föndurvara og hannyrðaefni verður líka á boðstólum.

Fyrirtæki og stofnanir í Nýheimum ætla einnig að notfæra sér daginn þar sem búist er við miklum mannfjölda í húsið og verða með kynningar á fjölbreyttri starfsemi sinni fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Jón bakari verður að sjálfsögðu með opið fyrir kaffi og kökur í Miðbæ en Kvennakór Hornafjarðar selur kaffi og vöfflur í Nýheimum, þær munu einnig hafa til sölu dagatöl og hljóðbækur.
Samkór Hornafjarðar ætlar að syngja fyrir okkur kl. 13 og Lúðrasveit Hornafjarðar spilar jólalög kl. 14.
Menningarmiðstöðin stendur fyrir bókamarkaði, bangsasölu og Saga Hafnar verður seld á sérstöku jólatilboði.

Klakarnir, lið Grunnskóla Hornafjarðar, sem sigraði í First Lego League keppninni 2008 verða með kynningu á verkefni sínu í fyrirlestrasal Nýheima af og til yfir daginn. Klakarnir verða einnig með happadrætti en þau eru að safna fyrir ferð til Danmerkur í vor þar sem þau taka þátt í Evrópukeppni Lego.

Allar verslanir í Miðbæ taka vel á móti fólki með spennandi tilboðum hvort sem er í mat- eða gjafavöru.
Markaðurinn hefst klukkan 11 og lýkur um kl. 16.30
Þá má benda á að aðrar verslanir á Höfn verða með alls konar tilboð og fínerí í gangi þennan dag.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica